Fotbolti.net
05.08.13 - 17:01
Elvar Geir Magnússon

Gunnar Heiðar í Konyaspor (Staðfest)

Gunnar Heiðar í Konyaspor (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur gert tveggja ára samning við Konyaspor í Tyrklandi. Þetta staðfesti hann í samtali við mbl.is.

Samningur Gunnars við sænska félagið Norrköping var að renna út en það fær dágóða summu fyrir leikmanninn.
„Þetta er ótrúlega spennandi verkefni en eigendur félagsins eru með stór markmið,“ sagði Gunnar við Vísi en Konyaspor er nýliði í tyrknesku úrvalsdeildinni.

Gunnar Heiðar hefur verið sjóðandi heitur í sænsku úrvalsdeildinni og er hann nú þegar kominn með 9 mörk og er næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar ásamt tveimur öðrum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.