05.08.13 - 19:49
Elvar Geir Magnússon
Loic Remy til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Loic Remy hefur gengið í raðir Newcastle United á lánssamningi frá Queens Park Rangers út tímabilið.
Remy gekk í raðir QPR í janúar frá Marseille og skoraði sex mörk í fjórtán leikjum en náði ekki að koma í veg fyrir að liðið féll.

„Ég er mjög ánægður með að vera orðinn leikmaður Newcastle og stoltur af áhuga félagsins. Það er mikill heiður að spila fyrir svona stórt félag,\" segir Remy sem er franskur.
„Ég er einbeittur að því að komast í landsliðshóp þjóðar minnar fyrir HM á næsta ári. Ég veit að til þess að ná því markmiði þarf ég að spila vel fyrir Newcastle og ég er ákveðinn í að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum og skora eins mörg mörk og hægt er.\"