05.08.13 - 12:40
Elvar Geir Magnússon
Roberto Soldado í Tottenham (Staðfest)

Roberto Soldado.

Mynd: Getty Images

Roberto Soldado.

Mynd: Getty Images
Þá er það frágengið. Sóknarmaðurinn Roberto Soldado er genginn í raðir Tottenham frá Valencia eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Tottenham birti mynd á Twitter þar sem Soldado heldur í treyju félagsins eftir að allt var klappað og klárt.

Soldado mun spila með Tottenham í æfingaleik gegn Espanyol næsta laugardag.
Soldado er 28 ára og hefur verið hjá Valencia síðan 2010 en hann skoraði 59 mörk í 101 leik fyrir félagið. Þar áður var hann í herbúðum Getafe og Real Madrid. Með spænska landsliðinu á hann 11 leiki og 6 mörk að baki.
Hann er keyptur til Tottenham á 26 milljónir punda sem er hæsta verð sem Lundúnafélagið hefur greitt fyrir leikmann.