05.09.26 - 18:13
Hafþór Örn Laursen
Gaui Lýðs eftir bikarlyftingu: Við göngum með hugrekki inn í Lengjudeildina næsta sumar
Auglýsing

Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er svolítið súrsæt tilfinning.'', sagði Gaui Lýðs, þjálfari Hauka, eftir að hafa lyft Íslandsmeistaratitlinum eftir tapleik þeirra gegn Selfossi í dag
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 2 Selfoss
„Frammistaðan var frábær, ég held við vorum með 15-16 skot gegn tveimur en þeir voru bara meira klínískir og nýttu færin sín betur.''
Í fyrri hálfleik virtist dómari leiksins missa stjórn á leiknum og miklar kvartanir heyrðust innan sem utan vallarins. Tómas Atli fékk að líta sitt seinna gula spjald þegar rúmar 10 sekúndur voru búnar af seinni hálfleik.
„Dómgæslan var mjög fín, eina er að fyrra gula spjaldið hans Tomma, það var Daði sem braut sem er svolítið súrt. Við vorum að þreyta Selfyssinga allan leikinn og láta þá hlaupa mikið. Orkan þeirra kláraðist aðeins þegar líða fór á leikinn meðan við vorum enn ferskir manni færri. ''
Haukar munu spila í fyrsta sinn í Lengjudeildinni síðan 2019 næsta sumar.
„Það er gaman að við séum komnir á þennan stað. við eigum tvo leiki eftir, Kára í lokaumferðinni og síðan er Gatorade-bikarinn eftir og við ætlum að vinna hann.''
Við byrjum bara á að taka á 1. deildinni. Það er þrusudeild og töluvert meira sett í allt þar. Við göngum með hugrekki inn í 1. deild og ætlum auðvitað að gera góða hluti.''
Varstu viss um að þegar Pablo Punyed, Óskar Örn og fleirri stólpar komu inn að þið gætuð sigrað deildina?
„Mér fannst ekki vanta gæðin inn í liðið, það vantaði meira svona „know-how''. Við fengum þessar kanónur til að leiða andlega og mér fannst við ná að breyta þeim kúltúr og hugarfari í liðinu. Ég er ótrulega þakklátur fyrir öllum sem hafa komið að þessu og sem maður náði að plata í þetta verkefni. Haukar eiga skilið að vera að lágmarki í 1. deild og vonandi byggjum við þetta upp enn frekar á næstu árum.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.