Fotbolti.net
05.09.26 - 19:54
Stefán Marteinn Ólafsson

Haraldur Freyr: Það er bara að bíða og sjá hvernig úrslitin fara

Auglýsing
Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík fékk Val í heimsókn á Ljósanótt í dag þegar 22. umferð Bestu deild karla hóf göngu sína. 

Keflavík verður að bíða til morguns til þess að sjá hvort þeir endi í efri hlutanum eða dragist niður í neðri hlutann.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 2 Valur

„Gríðarlega svekkjandi" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur svekktur eftir tapið í dag.

„Þetta var mjög jafn leikur í fyrri hálfleik og jafnræði með liðunum og í seinni hálfleik þá vorum við mikið meira með boltann og sköpuðum okkur margar fínar stöður" 

„Við komumst í margar góðar stöður til þess að krossa boltanum og skorum eitt gott mark en það dugar ekki til" 

„Þetta var algjört klaufamark sem að við fáum á okkur, annað markið þeirra og þetta var bara einn af þessum dögum" 

Keflavík verður að bíða til morguns til að sjá hvort þeir muni enda í efri hlutanum eða ekki þegar restin af 22. umferð fer fram. 

„Það eru bara leikirnir á morgun og sjá hvernig þeir fara. Við höfum ekkert með þá að gera þannig það er bara að bíða og sjá hvernig úrslitin fara"  sagði Haraldur Freyr Guðmundsson. 

Nánar er rætt við Harald Freyr Guðmundsson þjálfara Keflavíkur í spilaranum hér fyrir ofan.

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.