Fotbolti.net
05.09.26 - 17:59
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Sérfræðingarnir spáðu Völsung falli: Alltaf mjög gaman að gefa sokk

Auglýsing
Sérfræðingarnir spáðu Völsung falli: Alltaf mjög gaman að gefa sokk
Canon

Mynd: Völsungur

Lengjudeildin

„Bara ótrúlega vel" sagði Dagbjartur Búi Davíðsson, leikmaður Völsungs, eftir 2-0 sigur á Gróttu á útivelli. Eftir sigurinn á Gróttu og jafntefli Grindavíkur við Ægi er það staðfest að Völsungur verður áfram í Lengjudeildinni.

Lestu um leikinn: Grótta 0 - 2 Völsungur

„Þetta er risastórt fyrir Völsung og Húsavík. Gæti ekki verið glaðari núna. 

Tvö tímabil í röð hafa sérfræðingarnir spáð Völsungi falli.

„Það er alltaf mjög gaman að gefa sokk. Gefur mönnum hungur og motivation að gefa sokk."

Var erfitt að spila á móti Gróttu í stöðunni sem þið voruð í?

„Já mér fannst við díla mjög vel við þetta, sérstaklega í fyrri hálfleik. Svo var mikill varnarleikur í seinni hálfleik og við afgreiddum þetta fagmannlega."

Er erfitt að fara inn í leik þar sem annað lið þarf að tapa stigum?

„Það er alveg erfitt en við hugsuðum bara um að klára okkar og svo vorum við alveg að fylgjast með hinu eftir leik."

„Ég gat ekki farið inn og þakkað mönnum fyrir leikinn, ég þurfti að fylgjast með þessu."

Hvernig lítur framtíðin út fyrir Dagbjart?

„Það verður að koma í ljós. Bara taka smá frí og svo sennilega fer ég á æfingar með KA núna í næstu viku. Svo verð ég að taka ákvörðun um hvað verður næst, það kemur bara í ljós."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.