Valur á enn séns í efri hluta: „Partur af mér sem finnst við værum að sleppa með skrekkinn"

Chris Brazell stýrir Val út tímabilið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell stýrir Val út tímabilið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur vann gríðarlega mikilvægan sigur á Keflavík í 22. umferð Bestu deild karla í dag. Valur þarf hins vegar að bíða til morgun til þess að vita hvort hann dugi til þess að koma þeim upp í efri hluta eða ekki.
„Fyrst og fremst þá er ég bara ánægður og stoltur af strákunum" sagði Chris Brazell þjálfari Vals eftir sigurinn í dag.
„Það sem þeir hafa gert síðustu vikur frá því við spiluðum í Evrópu og jafnvel kannski aðeins fyrir það og núna þá hafa þeir verið að leggja inn frábæra vinnu, sýnt gott viðhorf og átt öflugar frammistöður"
„Við höfum verið örlítið óheppnir og ef við myndum spila nokkra af þessum leikjum aftur þá værum við með fleiri stig en við erum með"
„Í dag þá sýndum við allt það sem við höfum sýnt í síðustu leikjum og við fengum það sem við verðskulduðum og það voru þessi þrjú stig"
Valur þarf að bíða til morguns til þess að sjá hvort að þessi sigur skili þeim í efri hlutan eða ekki.
„Ef ég á að vera hreinskilin þá er það ekki það sem ég er með einbeitinguna á. Staðan í deildinni er ekki eitthvað sem ég er að hugsa um of mikið, strákarnir eru kannski að því en ég er bara að hugsa um stigin og frammistöðunnar"
„Auðvitað væri það gott að enda í top sex en það er partur af mér sem finnst að það myndi sleppa okkur með skrekkinn á tímabilinu"
„Mér finnst við ennþá þurfa að hafa fulla einbeitingu við þessa síðustu fimm leiki og sækja stig. Við höfum átt nógu erfitt tímabil sem er ekki endilega bara okkur að kenna en við eigum stóran þátt í því líka"
„Ég væri alveg til í að enda í top sex og spila við öll top sex liðin og sigla inn í sólsetrið en við verðum líka að halda áfram að leggja inn vinnuna, taka lyfin okkar og tryggja að við endum þetta tímabil á því að standa okkur vel og sækja stig"
„Sama hver útkoman verður þá er ég tilbúin til þess að leggja fulla einbeitingu við síðustu leikina og taka þeim alvarlega" sagði Chris Brazell.
Nánar er rætt við Chris Brazell í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 21 | +46 | 52 |
| 2 | KR | 21 | +27 | 44 |
| 3 | Fram | 21 | +14 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 21 | +3 | 30 |
| 5 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |
| 6 | ÍA | 21 | -4 | 27 |
| 7 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 8 | Stjarnan | 21 | -8 | 27 |
| 9 | FH | 21 | -11 | 21 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 21 | -14 | 17 |
