Fotbolti.net
05.09.26 - 17:37
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Völsungur áfram í Lengjudeildinni: Einhvern veginn vissi maður að þetta yrði sérstakur dagur

Auglýsing
Völsungur áfram í Lengjudeildinni: Einhvern veginn vissi maður að þetta yrði sérstakur dagur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin

Völsungur vann 2-0 sigur á Gróttu á útivelli. Með sigrinum, ásamt jafntefli Grindavíkur, er ljóst að Völsungur heldur sæti sínu í Lengjudeildinni. Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður Völsungs, ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Grótta 0 - 2 Völsungur

„Stórkostlega, þetta er frábær tilfinning. Við erum búnir að vera á flottu rönni og hingað til hafa flest öll úrslit einhvern veginn verið okkar í óhag. Þetta er búið að vera pínu þreytandi að fá eiginlega enga lukku. En svo þegar maður labbaði út hér í dag í logninu á nesinu einhvern veginn vissi maður að þetta yrði sérstakur dagur."

Er erfitt að fara inn í leik þar sem annað lið þarf að tapa stigum?

„Einhvern veginn var þægilegast að við þurftum að vinna, þá fór maður bara í leikinn og við vissum að við þurftum að vinna og við gátum ekki fengið neitt jafntefli eða svoleiðis. Að því leyti var það bara ágætt að geta bara hugsað um að vinna leikinn og vonast að eitthvað myndi detta annars staðar."

Tvö tímabil í röð hafa sérfræðingar spáð Völsungi falli.

„Húsavík er mikill fótboltabær og með mikið hjarta. Það bara kveikir í okkur að heyra þetta alltaf, kveikir í strákunum. Geggjað að fara þvert á spár. Ég held að við höfum fengið einu stigi meira núna en í fyrra."

Var þetta sætt fyrir þig?

„Já, það er geggjað að spila með uppeldisfélaginu og frábært að ná þessum árangri tvö ár í röð, að halda okkur í Lengjudeildinni."

„Þetta er búið að vera flottur hópur sem gafst aldrei upp á verkefninu og alltaf mætt með gleði sama hvað."

Ætlar Elfar að halda áfram að spila á næsta ári?

„Ég verð að fá að hugsa málið. Mig langar að segja já núna. Maður verður að sjá hvort að maður getur gert eitthvað í þessum skrokki og hvað fjölskyldan segir og svo. Jú jú, maður fer að hugsa þetta næstu mánuði, segum það bara."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Völsungur áfram í Lengjudeildinni: Einhvern veginn vissi maður að þetta yrði sérstakur dagur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.