Fotbolti.net
05.10.26 - 16:00
Haraldur Örn Haraldsson

Alex Freyr samningslaus - Mögulega á leið vestanhafs

Alex Freyr samningslaus - Mögulega á leið vestanhafs
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr Elísson leikmaður NSÍ Runavíkur í Færeyjum er samningslaus í lok tímabils en hann hefur átt gott tímabil í færeysku deildinni. Runavík sem er þjálfað af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni er á toppi færeysku deildarinnar og Alex hefur gert eitt mark og þrjár stoðsendingar á tímabillinu.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi á Alex frá liðum í Bandaríkjunum, Kanada og Póllandi. Auk þess hafa nokkur íslensk lið sýnt áhuga á að fá hann aftur til landsins. 

Alex er 28 ára bakvörður sem var síðast samningsbundinn Njarðvík á Íslandi en hann náði ekki að spila keppnisleik fyrir liðið áður en hann fór til Færeyja. Fyrir það lék hann með Fram, KA og Breiðablik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.