Fotbolti.net
05.10.26 - 15:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Falla með tæplega 900 landsleiki í liðunum sínum

Fyrir leik hjá Víkingi í sumar.

Fyrir leik hjá Víkingi í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Það er mjög athyglisvert að Valur og Víkingur hafi fallið úr Bestu deild kvenna en þetta var martraðasumar fyrir bæði lið sem ætluðu sér klárlega meiri og stærri hluti.

Í báðum leikmannahópum eru öflugir íslenskir leikmenn sem sjá væntanlega ekki fyrir sér að spila í Lengjudeildinni á næsta ári; eða kannski sjá þessir leikmenn að þeir skuldi félaginu fyrir þetta erfiða sumar.
Verði að hugsa „hvernig létum við þetta gerast?"
TENGT EFNI

Verði að hugsa „hvernig létum við þetta gerast?"

Þegar horft er til landsleikja fyrir Ísland í báðum leikmannahópum, þá eru þeir tæplega 900 í heildina í öllum aldursflokkum.

Í liði Víkings eru líka tveir leikmenn sem hafa spilað með A-landsliði Íslands. Það eru Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, sem á 2 A-landsleikir, og Telma Ívarsdóttir, sem hefur leikið 12 A-landsleiki. Telma kom til Víkinga á miðju sumri. Þá er ekki svo langt síðan Jasmín Erla Ingadóttir, sem er einnig í Víkingi, var hluti af A-landsliðinu í mikilvægum leikjum en spilaði ekki.

Í liði Vals er þá mikill fjöldi leikmanna sem hafa spilað yngri landsleiki fyrir Ísland og þar á meðal voru fimm leikmenn sem voru í lokahóp U19 landsliðsins á Evrópumótinu fyrr í sumar. Víkingur átti tvo leikmenn í þeim hóp.

Landsleikjahæstu leikmenn Víkings:
1. Bergdís Sveinsdóttir - 51 landsleikur og 12 mörk
2. Telma Ívarsdóttir (kom á miðju sumri) - 38 landsleikir
3. Freyja Stefánsdóttir (fór á miðju sumri) - 35 landsleikir og 5 mörk

Landsleikjahæstu leikmenn Vals:
1. Ísabella Sara Tryggvadóttir - 50 landsleikir og 14 mörk
2. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir (kom á miðju sumri) - 47 landsleikir og 11 mörk
3. Margrét Brynja Kristinsdóttir - 38 landsleikir og 8 mörk

Í leikmannahópi Víkinga eru alls 458 landsleiki fyrir landslið Íslands í öllum aldurshópum og í hópi Vals eru 432 landsleikir. Þess má geta að Valur var með næstyngsta liðið í Bestu deildinni í sumar á eftir FH, en Hlíðarendafélagið sótti marga unga leikmenn fyrir tímabilið í ár.

Þetta eru í heildina 890 landsleikir fyrir Ísland en samanborið við önnur lið í deildinni þá er bara Breiðablik með fleiri landsleiki í sínum hóp eða 614 talsins. Í þeim hópi er Agla María Albertsdóttir sem á í heildina 92 landsleiki, þar á meðal 65 A-landsleiki. Breiðablik er á toppi deildarinnar.
Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir gekk í raðir Víkinga á miðju tímabili.

Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir gekk í raðir Víkinga á miðju tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsarar svekktir eftir að fallið varð staðreynd.

Valsarar svekktir eftir að fallið varð staðreynd.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar eru með flesta landsleiki í sínum hóp en þær eru á toppnum.

Blikar eru með flesta landsleiki í sínum hóp en þær eru á toppnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.