Fotbolti.net
05.10.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tómas Orri til Íslandsmeistaranna?

Tómas Orri Róbertsson.

Tómas Orri Róbertsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ég er með leigubílasögu af U21 landsliðinu,” sagði Kári Snorrason, fréttamaður, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag.
Þá nefndi hann að Íslandsmeistarar Víkings hefðu áhuga á að krækja í Tómas Orra Róbertsson, miðjumann FH.

Tómas Orri er uppalinn í Breiðabliki en hefur spilað með FH síðustu tímabil og orðið algjör lykilmaður í Kaplakrika.

„Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það en núna hafa FH-ingar mikinn áhuga á Jóa Bjarna, að fá hann varanlega. Möguleg skipti?” spurði Kári.

Víkingar þyrftu nú líklega þá að borga á milli en Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur verið á láni hjá FH frá Víkingum seinni hluta tímabilsins.

Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur

Jóhannes Kristinn Bjarnason er á láni hjá FH.

Jóhannes Kristinn Bjarnason er á láni hjá FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.