Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. desember 2020 21:50
Victor Pálsson
Frakkland: PSG styrkti stöðuna á toppnum
Mynd: Getty Images
Montpellier 1 - 3 PSG
0-1 Colin Dagba('33)
1-1 Stephy Mavididi('41)
1-2 Moise Kean('77)
1-3 Kylian Mbappe('91)

Paris Saint-Germain styrkti stöðu sína á toppnum í Frakklandi í kvöld er liðið spilaði við Montpellier á útivelli.

PSG gerði þónokkrar breytingar á liði sínu frá 3-1 sigrinum á Manchester United í Meistaradeildinni. Neymar var til að mynda ekki í leikmannahópnum og Kylian Mbappe á bekknum.

Mbappe tókst að skora þriðja mark PSG í uppbótartíma en fyrir það hafði lánsmaður frá Everton, Moise Kean, komið liðinu yfir í 2-1. PSG hafði að lokum betur, 3-1.

Frönsku meistararnir eru á toppnum með 28 stig eftir 13 leiki en Marseille situr í öðru sætinu með 24 stig eftir þó aðeins 11 leiki.
Athugasemdir
banner
banner