Fotbolti.net
12.09.26 - 20:57
Ívan Guðjón Baldursson

England: Meistarasigur í Sunderland

England: Meistarasigur í Sunderland
Canon

Mynd: Arsenal

Sunderland 0 - 2 Arsenal
0-0 Enzo Le Fee, misnotað víti ('56)
0-1 Bruno Guimaraes ('58)
0-2 Bukayo Saka ('97, vítaspyrna)
Rautt spjald: Reinildo Mandava, Sunderland ('96)
Sunderland tók á móti Englandsmeisturum Arsenal í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar og voru meistararnir hættulegri aðilinn í nokkuð jöfnum fyrri hálfleik.

Arsenal fékk nokkur fín marktækifæri sem nýttust ekki og gerði svo tvöfalda skiptingu í leikhlé, þar sem Bruno Guimaraes og Jurriën Timber komu inn af bekknum fyrir Myles Lewis-Skelly og Ben White.

Heimamenn mættu grimmir til leiks í síðari hálfleikinn og fengu vítaspyrnu á 56. mínútu. Enzo Le Fée tók fína spyrnu en David Raya varði meistaralega frá honum og skömmu síðar tók Guimaraes forystuna með frábæru skoti utan vítateigs sem var óverjandi fyrir Robin Roefs á milli stanga Sunderland.

Heimamenn leituðu að jöfnunarmarki en fundu það ekki þrátt fyrir þunga pressu og fínar tilraunir. Englandsmeistararnir voru ekki upp á sitt besta og tókst þeim ekki að skapa mikla hættu til að gera út um leikinn með öðru marki, ekki fyrr en Bukayo Saka fiskaði vítaspyrnu seint í uppbótartíma sem hann skoraði úr sjálfur, þó að Roefs hafi verið með aðra hönd á boltanum. Reinildo Mandava braut á Saka og fékk seinna gula spjaldið sitt.

Lokatölur urðu því 0-2 fyrir Arsenal, sem er búið að vinna alla sex leiki sína í öllum keppnum á nýju tímabili.

Arsenal á útileiki við Ipswich Town í deildabikarnum og Brighton í úrvalsdeildinni í síðustu tveimur leikjunum fyrir landsleikjahlé.
England: Meistarasigur í Sunderland
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.