Fotbolti.net
05.12.23 - 22:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Mögnuð dramatík í ótrúlegum sigri Arsenal á Kenilworth Road

England: Mögnuð dramatík í ótrúlegum sigri Arsenal á Kenilworth Road
Canon

Mynd: EPA

<b>Luton 3 - 4 Arsenal</b>
0-1 Gabriel Martinelli ('20 )
1-1 Gabriel Osho ('25 )
1-2 Gabriel Jesus ('45 )
2-2 Elijah Adebayo ('49 )
3-2 Ross Barkley ('57 )
3-3 Kai Havertz ('60 )
3-4 Declan Rice ('90 )

Það var svakalegur leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Luton fékk Arsenal í heimsókn á Kenilworth Road.

Gabriel Martinelli kom gestunum yfir en Gabriel Osho jafnaði metin stuttu síðar.

Gabriel Jesus sá til þess að Arsenal var með forystuna í hálfleik þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Ben White.

Leiknum var hvergi nærri lokið en Luton tókst að snúa þessu sér í vil þegar Elijah Adebayo jafnaði metin snemma leiks í síðari hálfleik og Ross Barkley náði forystunni fyrir Luton.

Luton var hins vegar ekki lengi með forystuna því Kai Havertz jafnaði metin eftir sendingu frá Gabriel Jesus.

Declan Rice reyndist síðan hetja Arsenal þegar hann skoraði með skalla með síðustu snertingu leiksins. Þetta gæti reynst ansi mikilvægt fyrir liðið í titilbaráttunni.

England: Mögnuð dramatík í ótrúlegum sigri Arsenal á Kenilworth Road
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.