Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. janúar 2022 23:14
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho hafnaði Milan fyrir þremur árum - „Ég er glaður með þá ákvörðun"
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: EPA
Jose Mourinho, þjálfari Roma, sagði á blaðamannafundi eftir 3-1 tapið gegn Milan að hann væri feginn að hafa hafnað starfstilboði frá Milan fyrir þremur árum.

Portúgalski þjálfarinn fékk svakalegar móttökur á San Síró í kvöld en það var flautað og baulað á hann stóran part af leiknum.

Mourinho stýrði erkifjendum Milan í Inter og vann þar þrennuna árið 2010 en hann fékk þó tækifæri fyrir þremur árum að taka við Milan en hafnaði því.

Hann sér ekki eftir þeirri ákvörðun.

„Mér bauðst að taka við Milan fyrir þremur árum. Ég tók mér þrjá daga í að hugsa um tilboðið en ég er svo glaður með að hafa tekið þessa ákvörðun," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner