Fotbolti.net
06.02.21 - 17:24
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Jón Daði lagði upp mark í góðum sigri Millwall

Jón Daði Böðvarsson lagði upp mark fyrir Millwall

Jón Daði Böðvarsson lagði upp mark fyrir Millwall

Canon

Mynd: Getty Images

Tíu leikir fóru fram í ensku B-deildinni í dag en Bournemouth vann góðan 3-2 sigur á Birmingham City á meðan Cardiff City vann grannaslaginn gegn Bristol City, 2-0.
Jack Wilshere gekk til liðs við Bournemouth á frjálsri sölu á dögunum og hefur hann heldur betur verið að koma sér í gær hjá liðinu.

Hann skoraði annað mark Bournemouth í 3-2 sigrinum á Birmingham og annað mark hans fyrir liðið í sex leikjum.

Það er alltaf mikill rígur á milli Bristol City og Cardiff City en ekki er langt á milli þessara borga. Cardiff fær montréttinn eftir góðan 2-0 sigur en Curtis Nelson og Kieffer Moore gerðu mörk Cardiff í leiknum.

Brentford vann þá Middlesbrough 4-1. Ivan Toney, sem hefur verið einn besti maður B-deildarinnar í ár skoraði tvö mörk fyrir Brentford.

Jón Daði Böðvarsson lagði þá upp mark í 4-1 sigri Millwall á Sheffield Wednesday. Jón Daði var í byrjunarliði Millwall og lagði upp þriðja mark leiksins áður en honum var skipt af velli á 86. mínútu.

Jón Daði hefur skorað eitt mark og lagt upp tvö í B-deildinni á þessari leiktíð.

Millwall er í 13. sæti deildarinnar með 35 stig eftir leiki dagsins en hér fyrir neðan má sjá úrslit dagsins.

Úrslit og markaskorarar:

Bournemouth 3 - 2 Birmingham
0-1 Scott Hogan ('27 )
1-1 Arnaut Danjuma ('36 )
2-1 Jack Wilshere ('62 )
2-2 Scott Hogan ('69 )
3-2 Philip Billing ('77 )

Bristol City 0 - 2 Cardiff City
0-1 Curtis Nelson ('18 )
0-2 Kieffer Moore ('25 )

Coventry 0 - 0 Watford

Luton 1 - 1 Huddersfield
1-0 James Collins ('11 )
1-1 Naby Sarr ('74 )
Rautt spjald: Harry Toffolo, Huddersfield ('90)

Middlesbrough 1 - 4 Brentford
0-1 David Raya ('3 , own goal)
0-2 Ivan Toney ('38 )
0-3 Vitaly Janelt ('58 )
0-4 Mathias Jensen ('64 )
0-5 Ivan Toney ('80 )

Millwall 4 - 1 Sheffield Wed
0-1 Callum Paterson ('10 )
1-1 Kenneth Zohore ('39 , penalty goal)
2-1 Scott Malone ('68 )
3-1 Ben Thompson ('69 )
4-1 Tom Bradshaw ('90 )

Preston NE 1 - 2 Rotherham
1-0 Joe Rafferty ('1 , own goal)
1-1 Ben Wiles ('55 )
2-1 Ched Evans ('65 )

QPR 1 - 0 Blackburn
1-0 Yoann Barbet ('54 )

Stoke City 0 - 0 Reading

Wycombe Wanderers 0 - 3 Nott. Forest
0-1 Glenn Murray ('7 )
0-2 Glenn Murray ('54 , penalty goal)
0-3 Anthony Knockaert ('72 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea11+924
2Middlesbrough11+622
3West Ham11+1720
4Birmingham11+618
5QPR11+618
6Blackburn11+318
7Southampton11+1117
8Wolves10+317
9West Brom11+117
10Stoke City11+117
11Sheffield Utd11+115
12Millwall11015
13Bristol City11-314
14Bolton11-314
15Charlton Athletic11-514
16Portsmouth10-112
17Wrexham11-412
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich11-310
22Burnley11-58
23Derby County11-107
24Preston NE11-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.