Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 06. mars 2021 15:10
Aksentije Milisic
Crewe gerir grín að Liverpool með myndbandi
Mynd: Getty Images
Crewe Alexandra, sem leikur í fjórðu efstu deild á Englandi, hefur búið til myndband þar sem félagið gerir grín að gengi Liverpool.

Myndbandið er búið til í gegnum samfélagsmiðilinn TikTok. Það hefst með texta sem stendur: „Ensk lið sem hafa skorað fleiri mörk á heimavelli heldur en Liverpool á árinu 2021".

Í kjölfarið kemur myndband af Divock Origi klúðra dauðafæri gegn Burnley. Svo kemur listi með hinum ýmsu liðum sem hafa skorað fleiri mörk á heimavelli heldur en Liverpool á árinu. Brentford, Sunderland, Barrow, Wycombe, Manchester United, Cardiff, West Brom, Lincoln, Leicester og fleiri. Í endann koma viðbrögð frá Jurgen Klopp fram.

Hvers vegna Crewe valdi einmitt þennan tíma til þess að stríða Englandsmeisturunum er spurning sem margir átta sig ekki á.

Myndbandið, sem hefur verið horft á yfir 100,000 sinnum, er með heitið: „Nei, við erum ekki að grínast! Merktu lið þitt í athugasemdum ef það hefur skorað meira en Liverpool!"


Athugasemdir
banner
banner
banner