Fotbolti.net
06.04.19 - 11:43
Ívan Guðjón Baldursson

Jón Þór: Óásættanlegur kafli í síðari hálfleik

Auglýsing
Jón Þór: Óásættanlegur kafli í síðari hálfleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Íslenska kvennalandsliðið hafði betur gegn því Suður-kóreska í æfingaleik í morgun.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom Íslandi tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en misstu stelpurnar forystuna niður eftir leikhlé. Rakel Hönnudóttir náði þó að tryggja Íslandi sigur undir lokin.

„Varnarleikurinn gekk virkilega vel í fyrri hálfleik, við vorum þéttir og lokuðum svæðum vel. Hann gekk fullkomlega upp þessi fyrri hálfleikur og á liðið hrós skilið fyrir hann," sagði Jón Þór eftir leikinn. Hann var þó ekki jafn kátur með síðari hálfleikinn.

„Það eru hlutir í síðari hálfleik sem við getum ekki sætt okkur við, þar sem við missum niður 2-0 forystu. Á móti kemur að mér finnst liðið sýna frábæran karakter að koma til baka eftir það og ná í þennan sigur."

Liðin mætast aftur eldsnemma á þriðjudagsmorgun og mun Jón Þór breyta byrjunarliðinu umtalsvert, enda var hann sérstaklega ánægður með frammistöðu þeirra leikmanna sem komu inn af bekknum í morgun.

„Við munum auðvitað gera breytingar á milli leikja til að fá ferska fætur inn. Við ætlum okkur sigur í þessum leik og það er ljóst að Suður-Kórea vill sigur enda er liðið í undirbúningi
fyrir HM í sumar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.