Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 06. maí 2021 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fjögur félög gætu fengið tveggja ára bann frá Evrópukeppnum
Mynd: EPA
ESPN greinir frá því að stjórnendur UEFA séu alvarlega að íhuga að setja fjögur félagslið í tveggja ára bann frá Evrópukeppnum vegna fyrirhugaðrar Ofurdeildar Evrópu.

Áform um Ofurdeild voru kynnt í síðasta mánuði og gjörsamlega skotin á bólakaf af knattspyrnuheiminum. Þau tólf félög sem vildu stofna deildina hafa flest dregið stuðning sinn til baka og beðist afsökunar.

Nokkur félög hafa þó ekki dregið stuðning sinn við Ofurdeildina til baka og geta búist við alvarlegri refsingu frá UEFA. Heimildarmaður ESPN innan UEFA segir áform vera uppi um að setja Real Madrid, Barcelona, Juventus og AC Milan í tveggja ára bann frá öllum Evrópukeppnum.

UEFA hefur náð samkomulagi um refsingu við stofnfélögin sem drógu sig til baka, en þau eru Arsenal, Chelsea, Liverpool, Man City, Man Utd, Tottenham og Atletico Madrid. Þá er ekki langt í að samkomulag náist einnig við Inter.

„Það er mikill munur á þætti hvers félagsliðs fyrir sig í þessu. Við skiptum þessu í þrjá flokka sem fá mismunandi refsingar," sagði Aleksander Ceferin, forseti UEFA.

„Í fyrsta flokknum eru ensku félögin sex sem viðurkenndu mistökin strax og drógu sig til baka. Í næsta flokki eru félögin þrjú sem drógu sig til baka í kjölfarið (Atletico, Milan og Inter) og svo eru hin félögin, þessi sem halda að jörðin sé flöt og að Ofurdeildin sé enn á lífi (Juventus, Barcelona, Real Madrid)."

Staða AC Milan er nokkuð óljós en ítalska félagið er talið tilheyra síðasta flokkinum ásamt Barca og Real frekar heldur en öðrum flokki með Atletico og Inter.
Athugasemdir
banner
banner
banner