Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. maí 2021 10:25
Elvar Geir Magnússon
Leikmenn úr úrslitaleikjunum missa af landsleik
Mason Mount í landsleik gegn Íslandi.
Mason Mount í landsleik gegn Íslandi.
Mynd: Getty Images
Velgengni enskra liða í Evrópukeppnum gæti skapað vandamál fyrir Gareth Southgate landsliðsþjálfara Englands í undirbúningi fyrir EM alls staðar í sumar.

Hann gæti verið án ellefu fastamanna í vináttulandsleik gegn Austurríki sem fram fer þann 2. júní.

Þeir leikmenn sem spila úrslitaleiki Evrópudeildarinnar og Meistaradeildarinnar verða ekki með gegn Austurríki.

Manchester United er komið með annan fótinn í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og ljóst er að Chelsea mætir Manchester City í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Leikmenn eins og Mason Mount, Ben Chilwell, Reece James, Raheem Sterling, Kyle Walker, John Stones, Phil Foden, Marcus Rashford, Luke Shaw, Harry Maguire og Jordan Henderson verða því væntanlega allir fjarverandi í landsleiknum.

England spilar svo annan undirbúningsleik gegn Rúmeníu þann 6. júní þar sem leikmennirnir geta spilað. Fyrsti leikur Englendinga á EM verður gegn Króatíu þann 13. júní.
Athugasemdir
banner
banner