Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
   mið 06. maí 2026 20:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Voru mjög daprar í fyrri hálfleik - „Ekki eins og við í Þór/KA viljum gera hlutina"
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, ræddi við Fótbolta.net eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Stjörnunni í dag. Stjarnan var með tveggja marka forystu í hálfleik eftir tvö mörk beint úr hornspyrnu frá Andreu Mist Pálsdóttur.

Lestu um leikinn: Þór/KA 2 -  2 Stjarnan

„Við vorum mjög daprar í fyrri hálfleik. Það skorti allt hugrekki á boltanum og þær ofan á í eiginlega öllu. Að sama skapi skora þær tvö skítamörk eftir horn," sagði Alli Jói.

„Það var allt annað að sjá okkur í seinni hálfleik. Við höfðum engu að tapa en að sama skapi spiluðum við gríðarlega vel og vorum að skapa ursla. Ég veit að þegar við köstum öllu fram þá hefði Stjarnan mögulega getað klárað leikinn. Úr því sem komið var er ég gríðarlega ánægður að hafa komið til baka og sótt þetta stig."

Alli var spurður að því hvort hann ætti hálfleiksræðuna á upptöku.

„Ég á ekkert í henni. Það eru bara leikmenn og við sem ræddum saman og fórum yfir þetta. Þetta er ekki eins og við í Þór/KA viljum gera hlutina. Það er alls ekki eitthvað sem þjálfarinn sagði sem breytti hlutunum," sagði Alli Jói.
Slapp
banner
banner