Fotbolti.net
06.06.18 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Freysi: Höfum yfirleitt klárað svona óþægilega leiki

Auglýsing
Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Kvennalandsliðið hefur hafið undirbúning fyrir mikilvægan leik gegn Slóveníu í undankeppni HM á mánudaginn í næstu viku. Ísland er mikið sigurstranglegri aðilinn fyrir leikinn.

Íslenska liðið æfði á Kópavogsvelli í dag og í gær. „Mjög, mjög mikilvægur leikur fyrir okkur,\" sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, í viðtali við Fótbolta.net fyrr í dag.
„Staðan á hópnum er nokkuð góð, það er eitthvað smá hnjask. Rakel (Hönnudóttir) er búin að vera meidd í nokkurn tíma og við erum að sjá hversu langt við getum farið með hana. Aðrar eru heilar og í góðu standi.\"

„Eins og staðan er í dag getur Rakel ekki byrjað. Ég myndi ekki taka sénsinn á því. Við verðum að sjá hvað dagarnir gera fyrir okkur.\"

Um slóvenska liðið segir Freyr:

„Þetta er vel skipulagt lið með nýjan þjálfara, þær eru alltaf að verða betri undir hans stjórn. Þetta er óþægilegur andstæðingur, þær geta pakkað í vörn og ef við erum ekki á deginum okkar þá geta þær verið stóhættulegar í skyndisóknum og föstum leikatriðum. Það er uppskrift sem getur virkað ef við erum ekki á okkar degi og þær eru vel mótíveraðar. Ég hef trú á því að liðið mæti vel stemmt til leiks. Við höfum yfirleitt klárað svona óþægilega leiki.\"

Freyr kveðst ekki bjartsýnn á að fá mjög marga á völlinn. „Ekkert rosalega,\" segir hann.

„Það er kveðjuleikur hjá strákunum hjá morgun og það er fullt af miðum eftir þar. Ég held að fólk sé einhvers staðar annars staðar núna. Ég segi hlutina eins og þeir eru. Ég á ekki von á fullu húsi en ég veit að það verður fullt af fólki. Við ætlum að vinna og svo fer ég að frekjast að fá fullt hús 1. september.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Fyrir utan Laugardalsvöll.

Fyrir utan Laugardalsvöll.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.