Hér að neðan má sjá brot af umræðunni í kringum leikinn á samskiptamiðlinum Twitter. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Albanía
Íslenska landsliðið er að mér sýnist á réttri leið. Barátta, hæfileikar og margt jákvætt. Ungir menn sem eru að taka framförum. Ég er spenntur fyrir framhaldinu. #fotboltinet #fyririsland #ÁframÍsland
— Mr. Matti Matt-ekki á Rás 2 eða söngvari. Hann/Him (@mattimatt) June 6, 2022
Albert?? #fotboltinet pic.twitter.com/t8v86j48yv
— ParmaCalcio1913 -ISL 🇺🇦 (@ParmaIceland) June 6, 2022
Where on earth is Albert?!
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) June 6, 2022
Jaaa gott að geyma bara besta manninn a bekknum allan leikinn
— Sigurđur Gísli (@SigurdurGisli) June 6, 2022
Við vorum með yfirhöndina á stórum kafla í seinni hálfleiknum, okkur vantaði bara einhvern sem þorir og er með gæðin til að klára þennan leik.
— Albert Ingason. (@Snjalli) June 6, 2022
Bara ef við ættum einhvern í hópnum sem skoraði winner gegn Juventus fyrir mánuði síðan.
Flott stig gegn mögnuðu liði Albana
— Sigurđur Gísli (@SigurdurGisli) June 6, 2022
Babysteps. Er og verður þolinmæðisverk. Hvar var Albert? Jákvætt að sjá auka 1.000 hausa á vellinum þökk sé bjórnum.
— Henry Birgir (@henrybirgir) June 6, 2022
Nokkuð viss um að Pétur Lögga sé betri dómari en Craig Pawson
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) June 6, 2022
Gott stig á erfiðum heimavelli
— Magnus Bodvarsson (@MBodvarsson) June 6, 2022
Heyrðu, þetta var bara nokkuð fínt á Laugardalsvelli.
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) June 6, 2022
Súrt mark að fá á sig og ákvarðanataka á síðasta þriðjung oft frekar undarleg en solid frammistaða, baráttuandi og líf í manskapnum undir lokin!
Meira svona takk 🇮🇸
Top of the League pic.twitter.com/vKvbBqmvrT
— Gummi Ben (@GummiBen) June 6, 2022
Tólfan keeemur, nú syngjum við og tröllum 3 stig heim pic.twitter.com/YRrZQ4rmfl
— Jóhann Helgi (@JohannH3lgi) June 6, 2022
Betri seinni hálfleikur hjá strákunum okkar en betur má ef duga skal. Eitt skref áfram. Enginn sem stóð uppúr en kannski Daníel Leó bestur. Góðu fréttirnar tveir taplausir leikir í röð og sigur á leiðinni í næsta leik gegn einu lélegasta landsliði veraldar. Annað yrði skandall.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) June 6, 2022
Það er bara takk 🫡🫡🫡 pic.twitter.com/bWYRCumhlZ
— Jón Kári Eldon (@jonkarieldon) June 6, 2022