Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 06. júlí 2020 19:15
Aksentije Milisic
Kante meiddur - Ekki með gegn Palace
Mynd: Getty Images
N'golo Kante, miðjumaður Chelsea, verður ekki með liðinu á morgun þegar Chelsea heimsækir Crystal Palace.

Kante meiddist aftan á læri í sigurleik Chelsea gegn Watford á laugardaginn síðasta. Þá er Matteo Kovacic einnig frá vegna meiðsla.

„Kante verður ekki í hópnum gegn Crystal Palace. Hann er með smávægilega tognun aftan í læri. Hann verður frá í eina viku," sagði Frank Lampard, stjóri Chelsea.

Þá sagði Lampard að Kovacic og Fikayo Tomori verða heldur ekki klárir í slaginn. Chelsea er í hörku baráttu við Leicester og Manchester United um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Chelsea heimsækir Crystal Palace á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner