Queens Park Rangers eru búnir að tryggja sér Tyler Roberts á lánssamningi frá Leeds United út tímabilið.
Roberts er 23 ára framherji sem hefur ekki tekist að ryðja sér leið inn í byrjunarlið Leeds og verður því lánaður í næstu deild fyrir neðan.
QPR fær kaupmöguleika með lánssamningnum en samningur Roberts við Leeds rennur út sumarið 2024.
Roberts á 19 landsleiki að baki fyrir Wales án þess að skora. Hann skoraði aðeins eitt mark og lagði eitt upp með Leeds á síðustu leiktíð og ekki gekk honum betur á tímabilinu þar á undan.
Í heildina hefur Roberts aðeins skorað tvö mörk í 50 úrvalsdeildarleikjum með Leeds.
😏 Tyler is R's.#QPR | #TylerIsRs pic.twitter.com/S73BtC4PM6
— QPR FC (@QPR) July 6, 2022
Athugasemdir