Maurizio Sarri vantar nýjan aðalmarkvörð í herbúðir Lazio eftir að Pepe Reina og Thomas Strakosha fengu að yfirgefa félagið á frjálsri sölu í sumar.
Reina og Strakosha kepptust um að gera mistök á síðustu leiktíð en albanski landsliðsmarkvörðurinn endaði á að hafa betur og varði mark liðsins með sóma á seinni hluta tímabils.
Strakosha vildi þó ekki skrifa undir nýjan samning við Lazio og er farinn á frjálsri sölu. Reina framlengdi sinn samning við félagið um eitt ár en fékk samt að fara frítt á dögunum eftir að hann lagði inn beiðni um að skipta yfir til Villarreal.
Sarri þarf því að leita sér að nýjum markverði sem fyrst þar sem undirbúningstímabilið er hafið og byrjar deildartímabilið eftir rúman mánuð.
Chelsea og Fulham eru meðal félaga sem hafa sýnt Strakosha áhuga í sumar.