Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 06. ágúst 2020 22:06
Brynjar Ingi Erluson
Jimenez um Wolves: Við erum fjölskylda
Raul Jimenez skoraði sigurmarkið
Raul Jimenez skoraði sigurmarkið
Mynd: Getty Images
Raul Jimenez, framherji Wolves, var ánægður með 1-0 sigur liðins á Olympiakos í kvöld en liðið er komið áfram í 8-liða úrslit.

Jimenez gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 8. mínútu leiksins og dugði það til sigurs.

„Eftir fyrsta árið okkar í úrvalsdeildinni þá lærðum við mikið og náðum að tryggja sæti í Evrópudeildina. Núna höfum við náð í fleiri stig í úrvalsdeildinni og erum komnir í 8-liða úrslit. Við viljum halda áfram á sömu braut," sagði Jimenez.

Wolves mætir Sevilla í 8-liða úrslitum en það verður erfið viðureign.

„Við vitum að leikurinn gegn Sevilla verður erfiður. Sevilla er lið sem er eins og fjölskylda, svipað og hjá okkur á þessu tímabili en Sevilla er gott lið og eru með marga góða leikmenn," sagði hann enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner