Fotbolti.net
30.06.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Havertz orðlaus eftir enn eitt afhroðið

Havertz orðlaus eftir enn eitt afhroðið
Canon

Mynd: EPA

Kai Havertz, landsliðsmaður Þýskalands, var orðlaust eftir að Þýskaland datt úr leik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær.
HM: Paragvæ sendi Þýskaland heim eftir ótrúlega vítakeppni
TENGT EFNI

HM: Paragvæ sendi Þýskaland heim eftir ótrúlega vítakeppni

Arsenal-maðurinn var að spila á sínu öðru heimsmeistaramóti en á pappírnum fengu Þjóðverjar heldur þægilegan andstæðing miðað við margar aðrar þjóðir í 32-liða úrslitunum.

Paragvæ veitti þeim hins vegar alvöru leik. Liðið komst yfir en Havertz jafnaði metin með þriðja marki sínu á mótinu.

Á endanum höfðu Paragvæar betur í vítakeppni þar sem Havertz var einn af syndaselum Þjóðverja. Orlando Gill, markvörður Paragvæ, varði þá slaka vítaspyrnu hans.

„Ég er orðlaus, þetta er annað heimsmeistaramótið mitt og aftur klúðruðum við hlutunum. Síðustu stórmót hafa verið afhroð,“ sagði Havertz.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.