Fotbolti.net
06.08.26 - 16:51
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Víkings í Sviss: Ömmi í markinu og Valdimar á bekknum

Daníel Hafsteinsson er meðal byrjunarliðsmanna Víkings.

Daníel Hafsteinsson er meðal byrjunarliðsmanna Víkings.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Víkingur heimsækir svissneska liðið FC Thun í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Þetta er fyrri viðureign liðanna og hefst hún klukkan 18:00. Sama hvernig einvígið fer þá mun Víkingur spila til úrslita í umspili um að komast í annað hvort Evrópudeildina eða Sambandsdeildina.

SMELLTU HÉR til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Fari svo að Víkingur vinni einvígið Thun þá mætir liðið KÍ Klaksvík (Færeyjar) eða Lech Poznan (Pólland) í umspili um sæti í Evrópudeildinni.

En fari svo að Víkingur tapi einvíginu þá mun liðið mæta FK Borac (Bosnía og Hersegóvína) eða ML Vitebsk (Hvíta Rússland) í umspili um sæti í Sambandsdeildinni
Allt undir hjá Víkingum - Andstæðingarnir í sögubækur fótboltans
TENGT EFNI

Allt undir hjá Víkingum - Andstæðingarnir í sögubækur fótboltans

Lestu um leikinn: Thun 3 - 0 Víkingur R.
Sölvi Geir Ottesen hefur opinberað byrjunarlið Víkings. Víkingur tapaði fyrir Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael í seinni leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku. Það eru fjórar breytingar á byrjunarliði Víkings frá þeim leik.

Óskar Borgþórsson og Tarik Ibrahimagic verða frá næstu mánuðina vegna meiðsla sem þeir hlutu gegn Hapoel. Valdimar Þór Ingimundarson sest á bekkinn.

Inn í byrjunarliðið í þeirra stað koma Sveinn Gísli Þorkelsson, Stígur Diljan Þórðarson og Sveinn Margeir Hauksson. Þá kemur Ögmundur Kristinsson inn í markið en Aron Snær Friðriksson fer á bekkinn.

Byrjunarlið Thun

  • 1. Niklas Steffen (m)
  • 5. Nicolas Bürgy
  • 13. Nassim Zoukit
  • 16. Justin Roth
  • 19. Jan Bamert
  • 27. Michael Heule
  • 30. Nico Maier
  • 33. Marc Gutbub
  • 47. Fabio Fehr
  • 78. Valmir Matoshi
  • 96. Brighton Labeau

Byrjunarlið Víkingur R.

  • 29. Aron Snær Friðriksson (m)
  • 2. Sveinn Gísli Þorkelsson
  • 6. Gunnar Vatnhamar
  • 9. Helgi Guðjónsson
  • 10. Gylfi Þór Sigurðsson (f)
  • 11. Daníel Hafsteinsson
  • 21. Aron Elís Þrándarson
  • 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
  • 30. Sveinn Margeir Hauksson
  • 77. Stígur Diljan Þórðarson
  • 4. Oliver Ekroth (f)
Oliver Ekroth á æfingu Víkings í gær.

Oliver Ekroth á æfingu Víkings í gær.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Byrjunarlið Víkings í Sviss: Ömmi í markinu og Valdimar á bekknum
Canon

Mynd: Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.