06.08.26 - 20:32
Brynjar Ingi Erluson
Sambandsdeildin: Verk að vinna fyrir Val

Úr leiknum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það þurfti að skipta um dómara undir lok fyrri hálfleiks er Gergo Bogar tognaði aftan í kálfa og tók Balazs Berke við flautunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nordsjælland fer með tveggja marka forystu til Danmerkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 0 - 2 Nordsjælland
0-1 Villum Berthelsen ('29 )
0-2 Nicklas Røjkjær ('77 , víti)
Lestu um leikinn
0-1 Villum Berthelsen ('29 )
0-2 Nicklas Røjkjær ('77 , víti)
Lestu um leikinn
Valur tapaði 2-0 fyrir Nordsjælland í fyrri leik liðanna í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar á Hlíðarenda í kvöld.
Gestirnir voru mun meira með boltann, eins og ef til vill mátti búast við. Nordsjælland er eitt sterkasta lið dönsku úrvalsdeildarinnar og með marga gæðaleikmenn innan sinna raða.
Danirnir héldu boltanum vel og sköpuðu reglulega hættu. Fyrsta markið kom á 29. mínútu og var af dýrari gerðinni.
Villum Berthelsen fékk boltann fyrir utan teiginn og hamraði honum upp í samskeytin hægra megin. Algert draumamark og mikið högg fyrir Valsmenn sem höfðu komist í gott færi skömmu áður þegar Tryggvi Hrafn Haraldsson skaut beint á markvörð Nordsjælland.
Gestirnir voru nálægt því að tvöfalda forystuna aðeins þremur mínútum síðar. Frederik Schram varði skot Hjalte Boe út í teiginn en Runar Norheim tókst ekki að nýta frákastið.
Óvenjulegt atvik setti síðan svip sinn á fyrri hálfleikinn þegar Gergo Bogar, dómari leiksins, tognaði í kálfa og þurfti að fara af velli. Balazs Berke, fjórði dómari, tók við flautunni.
Nordsjælland fékk tvö góð færi til að bæta við í upphafi síðari hálfleiks. Hinum megin átti Lúkas Logi Heimisson ágæta tilraun en boltinn fór fram hjá markinu.
Tækifærin voru til staðar fyrir Val en liðinu tókst ekki að nýta góðar stöður nægilega vel. Þegar um stundarfjórðungur var eftir fengu Valsmenn síðan annað högg í magann.
Albin Skoglund tæklaði Junior Prince inni í teignum. Berke var kallaður að VAR-skjánum og benti á vítapunktinn eftir að hafa skoðað atvikið. Niclas Rojkjaer steig á punktinn og skoraði af öryggi.
Bjarni Mark Antonsson komst mjög nálægt því að minnka muninn niður í eitt mark á 87. mínútu er Valsmenn fengu hornspyrnu. Dauðafrír skalli, en beint á markvörð Nordsjælland sem missti boltann úr höndum sér áður en hann stökk á boltann.
Nordsjælland fer heim til Danmerkur með tveggja marka forskot fyrir síðari leikinn, en Valsmenn þurfa að matreiða eitthvað afar sérstakt til þess að bóka sæti í umspilinu.
Daniel Ingi Jóhannesson, sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar, sat allan tímann á varamannabekk Nordsjælland. Hann var orðaður við GAIS í Svíþjóð fyrr í dag og verður fróðlegt að sjá hvort hann færi sig yfir Eyrarsundið á næstu dögum.