06.08.26
Spáin fyrir enska - 17. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Við höldum áfram að opinbera spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Núna er komið að liðinu sem er spáð 17. sæti en kannski kemur það á óvart hvaða lið er þar.
Sunderland er nefnilega í 17. sætinu í spánni. Á síðasta tímabili voru Sunderland nýliðar og fór tímabilið langt fram úr björtustu vonum. Eftir að hafa unnið sér sæti í deildinni í gegnum umspilið bjuggust flestir við fallbaráttu, en undir stjórn Régis Le Bris endaði Sunderland í sjöunda sæti og tryggði sér óvænt sæti í Evrópudeildinni. Kjarni liðsins var styrktur með metnaðarfullum kaupum og liðið þróaðist hratt í eitt það erfiðasta að sækja heim.
Stadium of Light varð sannkallað vígi og Sunderland vann meðal annars eftirminnilega sigra á Chelsea, Everton og erkifjendunum í Newcastle. Reyndir leikmenn á borð við Granit Xhaka komu með ró og leiðtogahæfileika á meðan yngri leikmenn héldu áfram að taka stór skref í þróun sinni.
Nú bíður hins vegar önnur áskorun. Sunderland eru ekki lengur skemmtilegur nýliðar, heldur lið sem andstæðingar taka alvarlega. Evrópudeildin bætist við dagskrána og spurningin er hvort hópurinn sé nógu breiður til að takast á við álagið á tveimur vígstöðvum.
Stjórinn: Régis Le Bris hefur gert stórkotlega hluti fyrir Sunderland. Þegar Frakkinn var ráðinn sumarið 2024 vöktu margir athygli á því að hann væri nýfallinn úr efstu deild Frakklands með Lorient, en hann hefur þaggað niður í efasemdarröddum. Le Bris treysti ungum leikmönnum félagsins, þróaði skýran leikstíl og stýrði Sunderland fyrst upp í ensku úrvalsdeildina og síðan alla leið í Evrópudeildina á sínu fyrsta tímabili meðal þeirra bestu. Hann er rólegur og yfirvegaður, og er dýrkaður af stuðningsmönnum félagsins.

Mynd: EPA
Leikmannaglugginn: Sunderland fór auðvitað hamförum í félagaskiptaglugganum síðasta sumar en það hefur verið aðeins rólegra um að litast í sumar. Það var lykilatriði að halda Granit Xhaka hjá félaginu eftir áhuga frá Chelsea.
Komnir:
Thomas Meunier frá Lille - Á frjálsri sölu
Farnir:
Eliezer Mayenda til Rennes - 17,1 milljón punda
Dan Neil til Rangers - Á frjálsri sölu
Milan Aleksic til Partizan - Á láni
Líklegt byrjunarlið

Lykilmaður: Granit Xhaka
Svissneski miðjumaðurinn varð mikilvægasti leikmaður Sunderland um leið og hann mætti á Stadium of Light. Xhaka kom með gríðarlega reynslu, yfirvegun og leiðtogahæfileika inn í ungan leikmannahóp og átti stóran þátt í því að nýliðarnir enduðu óvænt í Evrópusæti. Chelsea sýndi honum mikinn áhuga í sumar, sem segir sitt um hversu hátt hann er metinn þrátt fyrir að vera kominn yfir þrítugt. Sunderland hélt þó í sinn lykilmann og Xhaka verður áfram hjartað í miðju liðsins á krefjandi tímabili þar sem Evrópukeppni bætist við dagskrána.
Gaman að fylgjast með: Enzo Le Fée
Er einn hæfileikaríkasti leikmaður Sunderland og gæti orðið enn stærri stjarna á komandi tímabili. Frakkinn er með framúrskarandi tækni, leikskilning og sköpunarkraft, en leggur jafnframt mikið á sig varnarlega og vinnur vel fyrir liðið. Hann skoraði mörk, lagði upp önnur og stjórnaði leik Sunderland á köflum á síðasta tímabili. Er í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins.
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaða fyrir Sunderland er sú að liðið bari haldi áfram á sömu braut og á síðasta tímabili ásamt því að gera vel í Evrópu. Versta niðurstaðan er sú að Evrópuálagið verði of mikið, hópurinn sé ekki nógu breiður og hörð fallbarátta bíði handan við hornið.
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. ?
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. ?
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig

Mynd: Premier League