06.09.26 - 16:37
Brynjar Ingi Erluson
„Alla dreymir um að byrja svona og ég er í skýjunum með það“

Maitland-Niles fagnar fyrsta marki sínu fyrir Everton

Mynd: EPA

Ainsley Maitland-Niles átti draumabyrjun með Everton þegar hann skoraði stórbrotið jöfnunarmark á lokasekúndunum í 2-2 jafntefli við Manchester United á Hill Dickinson-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Nýi maðurinn tryggði stig gegn Man Utd með stórbrotnu marki í lokin
Maitland-Niles þreytti frumraun sína með Everton eftir að hafa komið frá Lyon á lokadegi félagaskiptagluggans.
Hann kom inn af bekknum í síðari hálfleik og bjargaði stigi með stórbrotnu marki á lokasekúndunum. Hann lét vaða rétt utan teigs og boltinn söng efst í vinstra horninu.
„Þetta var eins og sigur. Við gáfum allt í þetta og náðum stigi að lokum. Stuðningsmennirnir stóðu með okkur og við börðumst til síðustu sekúndu. Þess vegna náðum við þessum úrslitum,“ sagði Maitland-Niles.
Hvernig var tilfinningin að skora þetta mikilvæga mark?
„Geggjuð. Alla dreymir um að byrja svona og ég er þakklátur fyrir að það tókst hjá mér. Boltinn datt fyrir mig utan teigs, ég hitti hann vel og hann fór efst í vinstra hornið. Ég er í skýjunum með það.“
„Ég kom hingað til að leggja hart að mér. Þetta er lið fullt af vinnusömum leikmönnum svo ég passa vel inn í hópinn. Ég ætla að sýna það, leggja mitt af mörkum og gefa jafn mikið og hinir, ef ekki meira,“ sagði Maitland-Niles.