Fotbolti.net
06.09.26 - 18:21
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Frábær sigur kom Val úr fallsæti

Besta deild kvenna: Frábær sigur kom Val úr fallsæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Grindavík/Njarðvík 1 - 4 Valur
1-0 Natasha Moraa Anasi ('9)
1-1 Lillý Rut Hlynsdóttir ('16)
1-2 Emma Hawkins ('35)
1-3 Málfríður Anna Eiríksdóttir ('47)
1-4 Emma Hawkins ('51)
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 4 Valur
Valur heimsótti nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur í lokaumferð deildartímabilsins í Bestu deild kvenna fyrir tvískiptingu og náðu heimakonur forystunni snemma leiks þegar Natasha Moraa Anasi skoraði eftir hornspyrnu. Hún var skilin eftir ein og óvölduð innan vítateigs.

Lillý Rut Hlynsdóttir var fljót að jafna metin með frábæru marki beint úr aukaspyrnu af rúmlega 25 metra færi. Hún þrumaði boltanum meðfram jörðinni og var staðan orðin 1-1.

Valskonur náðu forystunni með heppnismarki á 35. mínútu, þegar marktilraun Emma Hawkins breytti um stefnu af Natöshu Anasi og endaði í netinu. Eftir þetta komust þær nálægt því að bæta fleiri mörkum við en tókst ekki. Fyrst átti Arnfríður Auður Arnarsdóttir þrumuskot í slána og svo bjargaði Grindavík/Njarðvík á marklínu.

Staðan var 1-2 í leikhlé og innsigluðu Valskonur sigurinn í upphafi síðari hálfleiks. Málfríður Anna Eiríksdóttir tvöfaldaði forystuna eftir hornspyrnu á 47. mínútu og skoraði Emma sitt annað mark skömmu síðar eftir vandræðagang í varnarlínu heimakvenna.

Hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn svo lokatölur urðu 1-4 fyrir Val.

Grindavík/Njarðvík er því í efri hlutanum við tvískiptingu á meðan Valur á harða fallbaráttu framundan. Valskonur komu sér þó úr fallsæti með þessum sigri, þar sem þær eiga nú 20 stig eftir 18 umferðir.

Valur berst við Þór/KA, Fram og Víking R. í neðri hlutanum.
Besta deild kvenna: Frábær sigur kom Val úr fallsæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Frábær sigur kom Val úr fallsæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.