Fotbolti.net
06.09.26 - 13:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Þórs og FH: Oliver óvænt ekki með

Þrjár breytingar hjá Þór og tvær hjá FH

Grétar Snær kemur inn fyrir Oliver Stefánsson.

Grétar Snær kemur inn fyrir Oliver Stefánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 14:00 tekur Þór á móti FH í 22. umferð Bestu deildarinnar, síðustu umferð fyrir tvískiptingu. Liðin sitja í 9. og 10. sæti deildarinnar og er FH með þremur stigum meira en Þór. FH verður í 9. sæti eftir umferðina en Þór gæti fallið neðar í töflunni takist liðinu ekki að vinna leikinn í dag.

Fyrri leikur liðanna endaði með 1-1 jafntefli á Kaplakrikavelli og unnu bæði lið sína leiki í síðustu umferð.
Bjartur Bjarmi spáir í lokaumferð Bestu fyrir skiptingu
TENGT EFNI

Bjartur Bjarmi spáir í lokaumferð Bestu fyrir skiptingu

Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 FH
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir þrjár breytingar frá sigrinum á ÍBV. Birgir Ómar Hlynsson er meiddur, Bjarni Guðjón Brynjólfsson tekur út leikbann og Victor Bertomeu tekur sér sæti á bekknum. Inn í liðið kom þeir Einar Freyr Halldórsson, Kristófer Kristjánsson og Þorri Ingólfsson. Þeir Ásbjörn Líndal Arnarsosn og Hermann Helgi Rúnarsson koma inn í hópinn.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, gerir tvær breytingar frá sigrinum á Keflavík. Adolf Daði Birgisson tekur út leikbann en Oliver Stefánsson, sem hefur spilað virkilega vel með FH, er óvænt ekki með heldur. Inn koma Grétar Snær Gunnarsson og Guðmundur Andri Tryggvason. Ketill Orri Ketilsson (2008) kemur inn á bekkinn.

Byrjunarlið Þór

  • 1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
  • 5. Yann Emmanuel Affi
  • 6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
  • 8. Einar Freyr Halldórsson
  • 15. Kristófer Kristjánsson
  • 20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
  • 22. Ágúst Eðvald Hlynsson
  • 23. Kevin Vazquez Comesaña
  • 25. Christian Jakobsen
  • 31. Þorri Ingólfsson
  • 37. Sigfús Fannar Gunnarsson

Byrjunarlið FH

  • 1. Jökull Andrésson (m)
  • 2. Birkir Valur Jónsson
  • 6. Grétar Snær Gunnarsson
  • 7. Kjartan Kári Halldórsson
  • 11. Guðmundur Andri Tryggvason
  • 17. Jóhannes Kristinn Bjarnason
  • 18. Erlingur Agnarsson
  • 22. Ísak Óli Ólafsson (f)
  • 23. Tómas Orri Róbertsson
  • 32. Gils Gíslason
  • 37. Baldur Kári Helgason
Kristófer snýr aftur í liðið hjá Þór.

Kristófer snýr aftur í liðið hjá Þór.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Ingólfs byrjar en Victor tekur sér sæti á bekknum.

Þorri Ingólfs byrjar en Victor tekur sér sæti á bekknum.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Oliver verið eins og klettur í vörn FH.

Oliver verið eins og klettur í vörn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.