06.09.26 - 13:09
Kári Snorrason
Byrjunarlið Víkings og Fram: Ármann verðlaunaður með byrjunarliðssæti

Skoraði glæsimark gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tibbling kemur inn í lið Framara.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri byrjar sinn fimmta leik á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði glæsimark gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Topplið Víkings tekur á móti Fram í stórleik 22. umferðar. Flautað verður til leiks klukkan 14:00 og er búið að opinbera byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 Fram
Sölvi Geir Ottesen gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá jafnteflinu gegn KR síðastliðinn þriðjudag.
Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði illa og er því fjarri góðu gamni. Inn í hans stað kemur Róbert Orri Þorkelsson.
Ármann Ingi Finnbogason skoraði eina mark Víkings gegn KR og er hann verðlaunaður með byrjunarliðssæti. Úr liðinu víkur Stígur Diljan Þórðarson.
Fram gerði 2-2 jafntefli gegn KA í síðustu umferð. Rúnar Kristinsson gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá þeim leik.
Simon Tibbling kemur inn á miðjuna og Kristófer Konráðsson tekur sér sæti á bekknum.

Byrjunarlið Víkingur R.
- 29. Aron Snær Friðriksson (m)
- 4. Peter Oliver Ekroth (f)
- 9. Helgi Guðjónsson
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson
- 11. Daníel Hafsteinsson
- 15. Róbert Orri Þorkelsson
- 21. Aron Elís Þrándarson
- 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
- 25. Valdimar Þór Ingimundarson
- 69. Ármann Ingi Finnbogason
- 70. Hrannar Snær Magnússon
Byrjunarlið Fram
- 22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
- 3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
- 5. Kyle Douglas Mc Lagan
- 8. Haraldur Einar Ásgrímsson
- 9. Róbert Hauksson
- 12. Simon Tibbling
- 18. Ægir Jarl Jónasson
- 19. Kennie Knak Chopart (f)
- 25. Freyr Sigurðsson
- 26. Sigurjón Rúnarsson
- 29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Tibbling kemur inn í lið Framara.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri byrjar sinn fimmta leik á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð