06.09.26 - 18:35
Ívan Guðjón Baldursson
Carrick: Þetta er ekki svo slæm byrjun

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Michael Carrick þjálfari Manchester United var svekktur eftir fjögurra marka jafntefli gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Nýi maðurinn tryggði stig gegn Man Utd með stórbrotnu marki í lokin
Staðan var markalaus eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik þar sem bæði lið komust nálægt því að skora en Bryan Mbeumo náði forystunni strax í upphafi síðari hálfleiks.
Rauðu djöflarnir héldu forystunni allt þar til Tyrique George jafnaði á lokakaflanum, en skömmu síðar endurheimti Benjamin Sesko forystuna með skalla af stuttu færi.
Heimamenn gáfust þó ekki upp og tókst Ainsley Maitland-Niles að jafna með glæsilegu marki seint í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 2-2. Man Utd er því með fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju úrvalsdeildartímabili.
„Þetta er ekki jafn slæm byrjun á tímabilinu og einhverjir eru að segja. Við vorum óheppnir að ná ekki í þrjú stig í dag, þannig er fótboltinn. Þetta eru litlir hlutir sem við þurfum að laga, þetta verður allt í góðu. Það er mjög sárt að missa forystuna niður í tvígang en við lærum af þessu. Öll vinnan sem við lögðum í að ná forystunni varð að engu þegar þeir jöfnuðu. Tilfinningin er smá eins og að hafa tapað," sagði Carrick.
„Við áttum skilið að fá meira úr leiknum og við verðum að gera betur næst. Hugarfarið er til staðar en það eru augljóslega hlutir sem við þurfum að vinna í að laga sem liðsheild. Við misstum þetta niður í dag útaf tveimur frábærum skotum sem komu utan vítateigs. Bæði skotin enduðu undir vinklinum, það er ekki oft sem menn skora svona mörk. Við þurfum að finna leiðir til að fá færri mörk á okkur."
Man Utd byrjaði tímabilið á afar óvæntu tapi gegn nýliðum Hull City sem skoruðu eftir tvö föst leikatriði og svo unnu Rauðu djöflarnir 5-2 gegn Ipswich um síðustu helgi, eftir að hafa lent undir á Old Trafford.
Carrick var einnig spurður út í Marcus Rashford sem átti góðan leik áður en honum var skipt af velli á 70. mínútu.
„Hann fann fyrir einhverjum óþægindum svo við þurftum að skipta honum útaf. Hann og Luke Shaw voru frábærir á vinstri vængnum."

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 3 | +5 | 9 |
| 2 | Arsenal | 3 | +5 | 9 |
| 3 | Hull City | 3 | +3 | 7 |
| 4 | Chelsea | 3 | +1 | 6 |
| 5 | Brentford | 3 | +3 | 5 |
| 6 | Liverpool | 3 | +2 | 5 |
| 7 | Newcastle | 3 | +2 | 5 |
| 8 | Everton | 3 | +2 | 5 |
| 9 | Leeds | 3 | +1 | 5 |
| 10 | Brighton | 3 | +3 | 4 |
| 11 | Man Utd | 3 | +1 | 4 |
| 12 | Sunderland | 3 | 0 | 4 |
| 13 | Crystal Palace | 3 | -4 | 3 |
| 14 | Ipswich Town | 3 | -4 | 3 |
| 15 | Bournemouth | 3 | -1 | 2 |
| 16 | Nott. Forest | 3 | -1 | 2 |
| 17 | Aston Villa | 3 | -5 | 1 |
| 18 | Tottenham | 3 | -5 | 1 |
| 19 | Fulham | 3 | -3 | 0 |
| 20 | Coventry | 3 | -5 | 0 |