Fotbolti.net
06.09.26 - 16:43
Daníel Smári Magnússon

Eiður Smári: Myndi hjálpa hjartalínuritinu hjá mér

Auglýsing
Eiður Smári var hæstánægður með stigin þrjú.

Eiður Smári var hæstánægður með stigin þrjú.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Jú, bara flott. Við byrjum af krafti fannst mér og settum Breiðablik aðeins undir pressu. Náum að skora þetta mark, en auðvitað mikið svekkelsi og smá skellur að fá mark á sig svona fljótt eftir að hafa komist yfir af því að mér fannst við hafa yfirhöndina,'' sagði Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari KA, eftir 2-1 sigur á Breiðabliki í dag. Með sigrinum lyfta KA sér upp í 11. sæti deildarinnar, stigi á eftir grönnum sínum í Þór og FH.

Lestu um leikinn: KA 2 - 1 Breiðablik

Hann hélt áfram: „Það var kærkomið að fara með 1-1 inn í hálfleikinn, aðeins að geta róað okkur niður. Nokkrar áherslubreytingar kannski og svo samblanda af flottu spili inná milli. Sköpum okkur náttúrulega færi, við eigum tvö slár- eða stangarskot þannig að við sköpuðum alveg eitthvað af færum.''

KA menn fengu þónokkur tækifæri til þess að gera út um leikinn þegar skammt var til leiksloka, en í staðinn var stúkan með hjartað í lúkunum fram að lokaflauti. Hvernig leið Eiði Smára sjálfum?

„Ég mun aldrei gagnrýna leikmenn fyrir að klúðra færum, en vissulega myndi það hjálpa hjartalínuritinu hjá mér ef að við myndum klára leikinn fyrir okkur, en við komum okkur í þessar stöður.''

Snorri Kristinsson og Mikael Breki Þórðarson áttu báðir skínandi góðan leik og Mikael skoraði sigurmark heimamanna. Báðir skiluðu mögnuðu vinnuframlagi og Eiður hafði ekkert nema góð orð um þá að segja.

„Já, Mikael er eiginlega bara ómetanlegur fyrir okkur núna því að það hafa verið meiðsli og hann hefur kannski þurft að spila meira en við myndum vilja en hann virðist ekki vera á neinni niðurleið með kroppinn. Hann virðist bara verða sterkari og sterkari sem er frábært. Snorri kemur bara inn og það mætti halda að hann væri búinn að spila í mörg ár, miðað við viljann og þessa baráttu. Það er ábyggilega ömurlegt að spila á móti honum, þar sem að hann nær einhvernveginn alltaf að narta í andstæðinginn og verið frábær. En ég vil alltaf meira. Þetta er ekkert nóg, þetta er ekkert komið. Þetta er bara fyrsta skrefið,'' sagði Eiður Smári Guðjohnsen.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.