Fotbolti.net
06.09.26 - 17:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gyrðir: Hann æfir lengur og er að uppskera

Auglýsing
Þorri skoraði með góðu skoti, hans fyrsta mark fyrir Þór.

Þorri skoraði með góðu skoti, hans fyrsta mark fyrir Þór.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

„Ég er virkilega ánægður með liðið, sýndum mikinn karakter, vorum með axlirnar niðri og náðum í þrjú mikilvæg stig. Núna erum við búnir að vinna tvo leiki í röð og búnir að halda hreinu tvo leiki í röð. Auðvitað eigum við að skora meira í dag, en ég ætla ekki að pirra mig á því," segir Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, leikmaður Þórs, við Fótbolta.net eftir sigurinn á FH í 22. umferð Bestu deildarinnar í dag.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 FH
„Markið var geggjað, Þorri fær sendingu, tekur snertingu og afgreiðir vel. Hann er búinn að vera geggjaður, búinn að leggja mikla vinnu, er lengur á æfingasvæðinu að æfa sig að klára færi. Hann er að uppskera. Ég er mjög ánægður með hann, vinnusemina og hvernig hann tók menn á. Hann á mjög stórt hrós skilið og vel gert hjá honum að komast á blað."

Tvö bestu varnarlið deildarinnar frá komu Gyrðis
Þjálfarinn, Siggi Höskulds, var hæstánægður með varnarframmistöðuna í dag.

„Síðan ég kom höfum við átt marga góða leiki, við erum búnir að fá á okkur (næst) fæst mörk síðan ég kom. Ég er mjög ánægður með Affi og varnarlínuna í heild. Ég er mjög ánægður með þá og líka varnarvinnu fremstu manna, þeir hjálpa okkur með sínu framlagi," segir Gyrðir.

Frá komu Gyrðis hefur Þór fengið á sig níu mörk í átta leikjum og haldið hreinu fjórum sinnum. Það er það næst minnsta í deildinni á efrir FH sem hefur fengið á sig átta mörk í leikjunum átta.

Í lok viðtals, sem má sjá í spilaranum efst, ræddi Gyrðir um Aron Birki og framhaldið.
Varnarleikur Þórs hefur batnað til muna eftir komu Gyrðis.

Varnarleikur Þórs hefur batnað til muna eftir komu Gyrðis.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.