Fotbolti.net
06.09.26 - 17:14
Hafþór Örn Laursen

Hákon Ernir: Súrt að vita að við þurftum bara eitt mark

Auglýsing
Hákon Ernir, (t.v.) bráðabirgðarþjálfari Stjörnunnar.

Hákon Ernir, (t.v.) bráðabirgðarþjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er súrt að vita að við þurftum bara eitt mark til að koma okkur upp í efri sex.'', sagði Hákon Ernir, bráðabirgðaþjálfari Stjörnunnar eftir 2-2 jafntefli við ÍBV.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 2 ÍBV
„Mér fannst við koma vel inn í leikinn, fáum á okkur þetta mark úr einni skyndisókn sem tók okkur aðeins niður og það tók okkur smá tíma að komast upp úr því. Við fleygjum síðan öllu fram þegar við endum 0-2 undir og skorum þessi mörk en það dugði ekki til.''

Eins og Hákon nefndi áðan vantaði þeim aðeins eitt mark til að komast yfir Keflavík og komast upp í efri hlutann. Stjarnan situr því í 7. sæti, jafnir Keflavík í 6. sæti og munu þá spila gegn Val, FH, Þór, KA og ÍBV. Eru þetta vonbrigði fyrir Stjörnuna?

„Það eru alltaf vonbrigði fyrir lið eins og Stjörnuna að lenda í neðri hlutanum. En nú þurfum við bara að taka á þessari áskorun, það eru fimm leikir eftir sem við þurfum að nýta til að vera betri og gefa leikmönnum tækifæri til að vinna sér stöðu næsta tímabilið.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.