06.09.26 - 16:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói Kalli: Veikir menn að spila leikinn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver var ekki með FH í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekki góður dagur hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tapaði 1-0 á móti Þór á VÍS vellinum í 22. umferð Bestu deildarinnar í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH-inga, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Við vorum bara ekki við sjálfir í dag, held það hafi verið nokkuð augljóst," segir Jói Kalli og segir að fyrri hálfleikurinn hafi verið ágætur en „við áttum ekki mikið breik í seinni hálfleik og Þórsararnir pressuðu okkur vel. Við náðum ekki að spila út og halda í boltann eins og við vildum gera. Við vorum nokkuð slakir í dag og held að Þórsararnir hafi átt þetta skilið."

Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 FH
FH hefur verið á fínu skriði í deildinni og hafði einungis tapað einum leik í deildinni síðan í maí, og það tap var gegn toppliði Víkingi. Er þetta versta frammistaðan síðan í maí?
„Já, allavega þessi seinni hálfleikur, hann hlýtur að vera það. Afsökun eða ekki, við erum búnir því miður að glíma við veikindi í vikunni, menn eru slappir og orkulitlir að einhverju leyti vegna þess. Engar afsakanir samt, við tökum þetta á okkur, saman vorum við ekki. Við ætlum að skilja þessa frammistöðu eftir hér, ég lofa því að það verður ekki framhald af þessu. Við ræddum málin eftir leik og þetta er ekki sem við sættum okkur við."
Oliver Stefánsson var ekki með vegna veikinda. Er einhver sem spilaði í dag veikur?
„Já, ég held að nokkrir þarna séu svolítið slappir. Það skiptir máli upp á orkustigið, menn þurfa að vera 100% klárir. Þórsarar voru mjög agressífir og gerðu þetta vel. Það verður líka að hrósa þeim. En við áttum ekki góðan dag."
Var eitthvað smit í klefanum?
„Nei, eru ekki bara þessar pestir farnar að koma og við að glíma við einhverjar tegundir af þeim. Stundum kemur svona högg og ég held að við höfum aðeins fundið fyrir því," sagði Jói Kalli.
Hann ræddi um fallbaráttuna sem framundan er í lok viðtals sem má horfa á í spilaranum efst.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 3 | KR | 22 | +25 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 22 | -2 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |
| 7 | Stjarnan | 22 | -8 | 28 |
| 8 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 9 | FH | 22 | -12 | 21 |
| 10 | Þór | 22 | -28 | 21 |
| 11 | KA | 22 | -13 | 20 |
| 12 | ÍBV | 22 | -13 | 18 |