06.09.26 - 20:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lillý: Þetta hefur aldrei gerst fyrir mig áður
Auglýsing

Lillý Rut Hlynsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lillý Rut Hlynsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lillý Rut Hlynsdóttir heldur áfram að reynast drjúg fyrir Val en miðvörðurinn skoraði í þriðja leiknum í röð í kvöld þegar Valur vann 1-4 sigur gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna.
„Mér líður ótrúlega vel. Ég er ótrúlega stolt af liðinu og mér finnst þetta vera fyrsti leikurinn í sumar þar sem við höfum átt góðar 90 mínútur. Við höfum átt góða kafla í leikjum hér og þar, en þetta var mjög heilsteyptur leikur og ógeðslega flott hjá öllum í liðinu."

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 4 Valur
Valur lenti 1-0 undir snemma en liðið svaraði því vel. Lillý jafnaði metin með marki úr aukaspyrnu af 25 til 30 metra færi.
„Ég held ég hafi ekki tekið aukaspyrnu síðan í 5. flokki. Það var góður meðvindur og ég lét vaða. Það tókst. Eiki (Eiríkur Raphael Elvy, aðstoðarþjálfari Vals) sagði fyrir leik að ég ætti að skjóta markið fyrir utan teig ef við fengjum aukaspyrnu. Það var ekki flóknara en það. Ég var virkilega ánægð að skora fyrst ég gerði ekki mjög vel í markinu sem þær skoruðu. Ég var mest fegin að bæta upp fyrir það."
Eins og áður segir þá er Lillý búin að skora í þremur leikjum í röð.
„Þetta hefur aldrei gerst fyrir mig áður. Vonandi held ég bara áfram."
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.