Fotbolti.net
06.09.26 - 16:58
Hafþór Örn Laursen

Linta: Sástu leikinn?

Auglýsing
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er mjög vonsvikinn með úrslitin,'' sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir að liðið hans gerði 2-2 jafntefli við Stjörnuna í Miðgarði.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 2 ÍBV
„Mér fannst við gera nóg til að sigra, mér þykir þetta leitt fyrir strákana.''

„Við vorum varnarlega skipulagðir vel, þeir náðu ekki að skapa mikið og skoruðu þessi tvö mörk á örfáum mínútum. Mér fannst við skapa nokkur góð færi líka og ég tel að við misstum tvö stig út úr þessum leik.''


ÍBV enduðu í neðsta sæti með 18 stig eftir venjulegt tímabil, og keppa þá við Stjörnuna, Val, FH, Þór og KA eftir skiptinguna.

„Við erum byrjaðir að undirbúa okkur fyrir þessa leiki, ekki endilega bara leikina heldur æfingar líka.''

ÍBV hefur ekki sigrað leik síðan 4. júlí síðastliðinn. Linta var spurður hvort það hvíli yfir leikmönnunum.

Nei, sástu leikinn? Hvert er þitt mat á leiknum?''

Fréttaritari svaraði að þetta hafi verið vel spilaður jafnteflisleikur? Linta spurði síðan hvort að þetta hafi verið verðskuldað jafntefli og ansaði fréttaritari nei.

ÍBV er eins og kom fram áðan í 12. sæti fyrir skiptingu með 18 stig. Linta var spurður hvort það yrðu mikil vonbrigði ef ÍBV myndi falla.

„Auðvitað. Það yrðu vonbrigði fyrir alla, ekki bara fyrir félagið sjálft.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.