06.09.26 - 20:33
Ívan Guðjón Baldursson
Markvörðurinn Ronald Koeman Jr. bjargaði stigi með tvennu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ronald Koeman Jr., sonur Ronald Koeman fæddur 1995, er aðalmarkvörður hjá Telstar í efstu deild í Hollandi.

TENGT EFNI
Nökkvi sá rautt í endurkomunni - „Í þessu tilviki hefði gult spjald dugað“
Þar er hann samherji Nökkva Þeys Þórissonar og voru þeir báðir í byrjunarliðinu gegn Cambuur í dag.
Nökkvi fékk að líta rauða spjaldið í fyrri hálfleik og náðu gestirnir í kjölfarið tveggja marka forystu, en Koeman Jr. bjargaði sínum mönnum með því að skora tvennu.
Koeman Jr. er afbragðs vítaskytta líkt og faðir sinn var á sínum tíma og minnkaði fyrst muninn úr vítaspyrnu á 63. mínútu áður en hann jafnaði metin með vítaspyrnu seint í uppbótartíma, eða á 101. mínútu leiksins.
Lokatölur urðu því 2-2 og er Telstar með fjögur stig eftir fjórar umferðir.
Koeman Jr. varð með þessu fyrsti markvörður í sögu efstu deildar hollenska boltans til að skora tvennu.

Two penalties. Two goals. History made. ????
— Football on TNT Sports (@footballontnt) September 6, 2026
Ronald Koeman Jr. becomes the first goalkeeper to score TWICE in a Dutch Eredivisie match, the 2nd an equaliser in the 101st minute for his side Telstar ???? pic.twitter.com/lI2oqmVtdO

Mynd: EPA