Fotbolti.net
06.09.26 - 18:58
Sigurjón Árni Torfason

Óskar kallar spaða spaða: Hvort sem Víkingum líkar það betur eða verr að ég segi það

Auglýsing
Óskar Hrafn var ósáttur eftir leik.

Óskar Hrafn var ósáttur eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR heimsótti ÍA á Elkem-völlinn á Akranesi í lokaumferð Bestu deildar karla. Leiknum lauk með sannfærandi 3-1 sigri Skagamanna, í góðri stemningu og blíðskaparveðri á Akranesi.
Fótbolti.net var að sjálfsögðu mætt á völlinn og tók stöðuna á Óskari eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 3 - 1 KR
„Áttum ekkert skilið miðað við frammistöðuna, ein sú slakasta í sumar. Hún var orkulítil og kraftlítil og ekkert sem mér finnst hafa einkennt KR-liðið í sumar en áminning um að það verður að vera kveikt á okkur og við þurfum að vera að spila af krafti í 90 mínútur til að fá eitthvað út úr leikjum í þessari deild."

Spurning hvort það hafi spilað inn í frammistöðu liðsins að leikurinn fór fram á grasi, sem hefur ekki hentað KR-ingum vel í sumar.

„Nei, það er ekki hægt að kenna grasinu um. Það getur mögulega verið hluti af skýringu að við náum ekki flæði í leik liðsins en nei, það er ekki hægt að kenna grasinu um það. Við vissum það fyrir alllöngu að þessi leikur yrði á grasi og það er bara hluti af þessu. En það vantaði eitthvað í dag, einhvern neista, orku og, þú veist, þarf að skoða hjá mér hvernig undirbúningurinn fyrir leikinn var. Leikmenn þurfa að horfa kannski aðeins inn á við. Það þarf ekki að fara að dvelja of lengi við en menn þurfa að horfa aðeins inn á við hvað olli því að við mættum til leiks eins og raun bar vitni."

Óskar fór í viðtal eftir leikinn gegn Víkingi og óskaði þeim til hamingju með titilinn. Spurning hvort hann sé enn jafn fastur á þeirri skoðun að þetta sé búið?

„Ég sé ekki Víking tapa þeim stigum sem þeir þurfa að tapa í síðustu fimm leikjunum. Þannig að já, já, ég held að þetta sé búið. Það er engin hugarleikfimi eða einhverjir hugarleikir fólgnir í því. Það er bara mitt persónulega mat. Ég held að Víkingur verði Íslandsmeistari. Hvenær þeir tryggja sér það, átta mig ekki á því. En þú veist, að hvort sem þeim líkar það betur eða verr að ég segi það, þá er það bara þannig. Það er bara kallað spaða spaða og þannig er það."
Sagði Óskar við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.