06.09.26 - 17:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Siggi Höskulds: Hann er með stærsta Þórshjarta í heiminum
,,Átti einhverja bestu frammistöðu sem ég hef séð lengi"
Auglýsing

Mjög kátur eftir leik.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Kevin spilaði mjög vel á miðju Þórs.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þorri skoraði mark Þórs í dag.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Vilhelm átti góðan leik í bakverðinum.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Mjög kátur eftir leik.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
„Við vorum bara hrikalega góðir í dag. Ég hef sjaldan séð jafn öfluga varnar frammistöðu; pressan okkar var stórkostleg. Mér fannst við miklu betri og orkumeiri en FH-ingar í dag. Sóknarlega vorum við miklu betri en í síðasta leik, svekkjandi að ná ekki að klára fleiri sóknir með mörkum," segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, við Fótbolta.net eftir sigurinn á FH í 22. umferð Bestu deildarinnar í dag.
Þorri Ingólfsson skoraði eina mark leiksins með góðu vinstri fótar skoti úr teignum, hans fyrsta mark fyrir Þór og kom það eftir stoðsendingu frá Einari Frey Halldórsson. Í fyrsta sinn í sumar tekst Þór að vinna tvo leiki í röð.

Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 FH
„Seinni hálfleikurinn er bara frábær. Þeir komast varla yfir miðju meiri hluta seinni hálfleiks. Hrikalega ánægður með það sem við hentum í þennan leik. Ein besta frammistaða sumarsins og gefur okkur pottþétt eitthvað inn í þessa blessuðu úrslitakeppni."
„Markið er frábært, Þorri er búinn að vera einn besti leikmaðurinn á hverri einustu æfingu síðustu tvær vikur. Þetta var í takti við það, búinn að raða inn mörkum á æfingum. Frábært mark og akkúrat það sem við þurfum frá fremstu mönnum. Ég gargaði á þá í hálfleik að það þyrfti einhver að vera með kjarkinn í að hlaupa inn á teiginn og skora mark. Hann sýndi það svo sannarlega þessi gaur. Sendingin frá Einari var geggjuð líka, þeir tveir voru alveg frábærir í leiknum og fleiri. Eini sem ég get tekið út er kannski spænski á miðjunni (Kevin Vazquez), hann átti einhverja bestu frammistöðu sem ég hef séð lengi."
Vilhelm Ottó Biering fékk það hlutverk að mæta hinum eiturfljóta Gils Gíslasyni í liði FH í dag og tók þá vakt með trompi.
„Villi er með stærsta Þórshjarta í heiminum, maður getur alltaf treyst því að hann setur alltaf 100% í þetta. Hann var smá í brasi á boltanum í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var bara frábær."
Í viðtalinu er Siggi spurður út í vítaspyrnu sem Þór átti að fá í leiknum. Í lok viðtals er hann svo spurður út í framhaldið. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum efst.