06.09.26 - 16:59
Kári Snorrason
Sölvi: Búinn að gefa upp vonina að fá víti
Auglýsing

Búinn að gefa upp vonina að fá vítaspyrnur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ármann Ingi skoraði fyrsta mark leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar eru með átta stiga forystu á toppi deildarinnar.

Það væri alveg fínt að fá þessi víti en við þurfum fyrst og fremst að horfa í spilamennskuna okkar. Við hefðum átt að gera miklu betur - koma kraftmeiri og gera betur í leiknum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Fram á Víkingsvelli fyrr í dag.
Víkingar gerðu tilkall til þess að fá í hið minnsta tvær vítaspyrnur. Sölvi var spurður um skoðun á atvikunum tveimur.
„Nei, ég er svosem ekki búinn að sjá þetta aftur. Ég er bara búinn að gefa upp vonina að fá víti. Þetta kemur mér ekkert á óvart. Frá mínu sjónarhorni var mikil vítalykt af þessu,“ segir Sölvi og telur hann liðið jafnframt hafa átt að fá vítaspyrnu gegn KR í síðustu umferð.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 Fram
Gylfi Þór Sigurðsson fór af velli í hálfleik. Sölvi segir að ekki sé um nein meiðsli að ræða heldur einungis stífleika í vöðva.
„Þetta var stífleiki og eitthvað sem við ákváðum að taka engar áhættur með. Hann stífnaði í vöðva, engin meiðsli þannig séð. Hann er búinn að spila fullt af leikjum á háu tempói. Hann missir varla af leik hjá okkur. Einhvern tímann kom að því að einn vöðvinn myndi stífna upp og við tökum engar áhættur með það,“ segir Sölvi að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.