Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins var að vonum ánægður og gott betur en það eftir 3-0 sigur liðsins gegn Tyrkjum í næst síðustu umferð undankeppni HM í Tyrklandi í kvöld.
Sigurinn fleytir íslenska liðinu í topp sætið og sigur í lokaleik gegn Kosovó á Laugardalsvelli næsta mánudag tryggir Íslandi farseðilinn á HM í Rússlandi næsta sumar.
Sigurinn fleytir íslenska liðinu í topp sætið og sigur í lokaleik gegn Kosovó á Laugardalsvelli næsta mánudag tryggir Íslandi farseðilinn á HM í Rússlandi næsta sumar.
Lestu um leikinn: Tyrkland 0 - 3 Ísland
„Ég hef aldrei verið betri í rauninni. Ég er stoltur af drengjunum og okkar leikskipulag hepnnaðist fullkomlega upp í kvöld. "
„Við þurftum á stórleik að halda til að klára þetta og það eru ekki mörg lið sem taka 3-0 sigur gegn Tyrkjum á þeirra heimavelli."
Aron Einar hefur verið að glíma við meiðsli undanfarna daga og vikur en hann spilaði þó í kvöld en fór af velli á 60. mínútu í stöðunni 3-0.
„Mér fannst það vera skynsamleg ákvörðun. Ég var orðinn aðeins stífur í kálfanum en það er bara af því að ég hef lítið æft síðustu daga."
„Ég var búinn að ímynda mér hvernig áhorfendur þeirra yrðu þegar við myndum setja mark á þá og það var akkúrat þannig. Það kom þögn og það var góð tilfinning og þá í rauninni héldum við áfram. Við ætluðum að klára þetta og gerðum það svo sannarlega."
Aron Einar segir að það þýði ekkert að fagna alltof miklu strax.
„Við erum ekki að fagna neinu, við eigum eftir erfiðan leik á mánudaginn. Það er jákvætt að þetta sé í okkar höndum. Það er undir okkur komið að klára þetta. Annar úrslitaleikur here I go, eins og vanalega."
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























