Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 06. október 2020 09:05
Magnús Már Einarsson
Shaqiri með kórónuveiruna - Sá þriðji hjá Liverpool
Xherdan Shaqiri, leikmaður Liverpool, hefur greinst með kórónuveiruna en svissneska knattspyrnusambandið greindi frá þessu í dag.

Shaqiri verður því ekki með Sviss í komandi landsleikjum gegn Króatíu, Spáni og Þýskalandi.

Shaqiri er þriðji leikmaður Liverpool sem greinist með veiruna á skömmum tíma en áður höfðu Sadio Mane og Thiago Alcantara gert það.

Í gær var möguleiki á að Shaqiri myndi fara frá Liverpool áður en félagaskiptaglugginn lokaði en á endanum náðu félög ekki samkomulagi um kaupverð við ensku meistarana.



Athugasemdir
banner