06.10.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gulldrengurinn: Úrvalsdeildin með flesta fulltrúa

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Verðlaunin um Gulldreng Evrópu eru veitt á hverju ári af ítalska fjölmiðlinum Tuttosport, sem stendur fyrir víðamikilli kosningu þar sem fjölmiðlar um allan heim fá atkvæðarétt.
Reglurnar virka þannig að einungis leikmenn 21 árs og yngri eru gjaldgengir og getur sami leikmaður ekki unnið verðlaunin tvisvar sinnum á ferlinum.
Lamine Yamal vann verðlaunin 2024, þegar hann var aðeins 17 ára og 137 daga gamall. Hann er yngsti Gulldrengur sögunnar allt frá því að verðlaunin voru fyrst úthlutuð árið 2003.
Lionel Messi er eini Gulldrengur sögunnar sem hefur líka tekist að hampa Ballon d'Or verðlaununum á ferlinum, en það met mun ekki standa lengi. Auk Yamal hafa stórstjörnur á borð við Kylian Mbappé, Jude Bellingham og Erling Haaland hlotið verðlaunin Gulldrengur ársins á síðustu árum. Það er einungis tímaspursmál hvenær einhver þeirra ber sigur úr býtum í kosningunni um Ballon d'Or.
Désiré Doué, kantmaður PSG og franska landsliðsins, var valinn Gulldrengur ársins í fyrra.
25 leikmenn koma til greina sem Gulldrengur ársins og á enska úrvalsdeildin flesta fulltrúa, eða átta talsins. Þá vekur það athygli að leikmennirnir 25 sem koma til greina leika allir í sex sterkustu deildum Evrópu.
Nokkrir afar spennandi leikmenn koma til greina en talið er að Pau Cubarsí, varnarmaður Barcelona og spænska landsliðsins, sé líklegastur til að hreppa verðlaunin.
Danski miðjumaðurinn Victor Froholdt er eini fulltrúinn frá Skandinavíu. Til gamans má geta að Said El Mala, liðsfélagi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar í FC Köln, kemst á listann.
Enska úrvalsdeildin (8)
Ayyoub Bouaddi / Manchester City
Luka Vuškovic / Brighton
Myles Lewis-Skelly / Arsenal
Rayan / Bournemouth
Jorrel Hato / Chelsea
Estêvão / Chelsea
Junior Kroupi / Bournemouth
Charalampos Kostoulas / Brighton
La Liga (6)
Pau Cubarsí / Barcelona
Marc Bernal / Barcelona
Xavi Espart / Barcelona
Yan Diomande / Real Madrid
Endrick / Real Madrid
Jon Martín / Real Sociedad
Bundesliga (5)
Lennart Karl / FC Bayern
Saïd El Mala / Köln
Konstantinos Karetsas / Dortmund
Joane Gadou / Dortmund
Finn Jeltsch / Stuttgart
Serie A (3)
Kerim Alajbegovic / Juventus
Rodrigo Mora / Roma
Franco Mastantuono / Fiorentina (Real Madrid)
Liga Portugal (2)
Victor Froholdt / Porto
Gianluca Prestianni / Benfica
Ligue 1 (1)
Warren Zaïre-Emery / Paris Saint-Germain