Fotbolti.net
04.10.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Heimir: UEFA verður að grípa inn í og gera eitthvað

Heimir: UEFA verður að grípa inn í og gera eitthvað
Canon

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson svaraði spurningum eftir jafnteflisleik Írlands gegn Ísrael sem fór fram fyrr í kvöld.
Fréttamannafundi Heimis lauk skyndilega eftir spurningar og ásakanir ísraelsks blaðamanns
TENGT EFNI

Fréttamannafundi Heimis lauk skyndilega eftir spurningar og ásakanir ísraelsks blaðamanns

Írar náðu forystunni með marki úr vítaspyrnu en Ísraelar jöfnuðu metin svo lokatölur urðu 1-1. Leikið var fyrir luktum dyrum í Serbíu og voru engar auglýsingar á auglýsingaskiltum vallarins.

Írar hafa kvartað undan því að þurfa að spila við Ísrael í Þjóðadeildinni og vill Heimir að UEFA haldi þjóðunum frá því að mæta hvorri annarri í framtíðinni.

„Þetta er ákvörðun sem UEFA þarf að taka en það er augljóst að þessar tvær þjóðir ættu ekki að mætast. Það er mjög mikill stuðningur við Palestínu á Írlandi, það eru ekki margar þjóðir sem styðja jafn mikið við Palestínu og sú írska," sagði Heimir eftir lokaflautið og neitaði að tjá sig um ryskingar leikmanna í göngunum á leið til búningsklefa þegar flautað var til leikhlés.

„Ég óska ekki neinni þjóð að þurfa að ganga í gegnum það sem við höfum þurft að ganga í gegnum síðustu tvær vikur. UEFA verður að grípa inn í og gera eitthvað í þessu."

Þess má geta að ísraelsku fréttamennirnir sem eyðilögðu fréttamannafund Heimis fyrir leik hafa verið bannaðir frá því að starfa í kringum leiki í framtíðinni. Annar þeirra hringdi á serbnesku lögregluna og kærði líkamsárás eftir að starfsmaður írska fótboltasambandsins hrifsaði hljóðnemann af honum eftir að Heimir gekk út af fundinum.
Heimir: UEFA verður að grípa inn í og gera eitthvað
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.